Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður Everton, er búinn að jafna sig nárameiðslum og getur snúið aftur gegn Watford í dag. Gylfi hefur misst af síðustu tveimur leikjum Everton vegna meiðslanna. „Gylfi Sigurðsson er klár í slaginn," segir Carlo Ancelotti, stjóri Everton. Richarlison og Alex Iwobi hafa einnig jafnað sig af meiðslum, og þá er Andre Gomes byrjaður að æfa aftur eftir að hafa fótbrotnað á skelfilegan hátt gegn Tottenham í nóvember síðastliðnum. Hinn Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni, Jóhann Berg Guðmundsson, er hins vegar enn á meiðslalistanum. Jói Berg verður ekki með Burnley á sunnudaginn gegn Arsenal. Jóhann Berg hefur verið frá keppni vegna meiðsla á læri. Íslendingurinn hefur aðeins spilað sjö leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili vegna meiðsla.