Burnley mætir Man City í kvöld á Turf Moor og er það leikur sem Jóhann Berg hefði ólmur viljað spila. „Þetta gerist ekki betra en þetta," sagði Jói um leikinn á Turf Moor í kvöld. „Það er auðvitað svekkjandi (að geta ekki spilað). Maður er orðinn vanur því að vera á hliðarlínunni sem er auðvitað hundleiðinlegt. Vonandi verð ég kominn aftur inn á völlinn sem fyrst." „Fyrst og fremst ætlum við að stoppa þeirra sóknarleik. Við þurfum að gera þetta eins ljótt og hægt er. Þú ferð ekki gegn City og reynir að spila samba-fótbolta. Þeir eru frábært fótboltalið og þetta verður auðvitað erfitt, en ég get lofað því að þeir eru hræddir fyrir þennan leik." Hann segir að Burnley komi mögulega á óvart í uppstillingu sinni í kvöld. „Það gæti verið svolítið óvænt, ég ætla ekki að gefa of mikið upp - Pep gæti verið að horfa," sagði Jói léttur.