Böðvar Böðvarsson, leikmaður Jagiellonia Bialystok, er í liði umferðarinnar í pólsku úrvalsdeildinni fyrir frammistöðu sína gegn Arka Gdynia um síðustu helgi.Böðvar skoraði annað mark Jagiellonia Bialystok þegar liðið lagði Arka Gdynia, 2-0. Böðvar fékk þá boltann fyrir utan teig vinstra megin og lék á varnarmann áður en hann setti boltann í netið með góðu skoti innan teigs. Markið má sjá neðst í fréttinni.Þetta var fyrsta mark hans fyrir liðið en Böðvar gekk til liðs við Jagiellonia frá FH í byrjun árs 2018.