U17 landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson skoraði bæði mörk U17 ára liðs Spal í 2-1 sigri gegn Torino í gær. Leikurinn var framlengdur en með sigrinum þá komst Spal áfram í úrslitakeppni U17 liða á Ítalíu.Spal mætir annað hvort Genoa eða Hellas Verona um næstu helgi. Mikael Egill var með íslenska U17 landsliðinu sem tók þátt í lokakeppni EM í Dublin fyrr í þessum mánuði. Hann skoraði í leikjunum gegn Ungverjalandi og Portúgal. Leikmaðurinn ungi var seldur frá Fram til Spal sumarið 2018.