Þessi bíll var upphaflega hannaður til notkunar í löngum leiðöngrum á Suðurskautslandinu þar sem hann hefur verið notaður í nokkur ár með frábærri reynslu. Stór dekkin gefa gott flot í mjúkum snjónum, en bíllinn getur borið allt að 1,3 tonnum.Reynslan af þessum bílum er frábær, en helstu kostir þeirra eru: Einstök burðargeta | Mikil drifgeta | Langdrægni | Mun minni eldsneytiseyðsla en hjá sambærilegum faratækjum.