Hugann seiða svalli frá,sundin, heiði og skörðin;vona-leið er valin þá,vestur Breiðafjörðinn.Allt er borið burtu gróm,bæði af Skor og fjöllum,því að vorið blóm við blóm,breiddi í sporum öllum.Dægur-halli daggperlum,dreifir vallargróðann;bjargastalla beltast um,blessuð fjallamóðan.Þrjóti grið á þessum stað,þá er lið að skeiðum,því að hlið er opið að,úthafsmiðum breiðum.