Breiðablik vann 4-1 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði í Lengjubikarnum í dag. Leikið var í Fjarðabyggðarhöllinni. Eftir leikinn færðu Blikar andstæðingum sínum gjöf sem mun nýtast vel fyrir yngri iðkendur á Austurlandi. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, færði þeim Jónu Petru Magnúsdóttur frá Leikni og yngri flokkum Fjarðabyggðar (YFF) og Guðnýju Margréti Bjarnadóttur frá YFF 25 bolta sem nýtast eiga í barnastarfi hjá YFF. Þessi gjöf er hluti af stefnu knattspyrnudeildar Breiðabliks við að aðstoða félög á landsbyggðinni í barna- og unglingaknattspyrnu.